Hoppa yfir valmynd
Úrskurðarnefnd velferðarmála - Barnaverndarmál

Mál nr. 269/2023-Úrskurður

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 269/2023

Mánudaginn 25. september 2023

A

gegn

Barnavernd B

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Kári Gunndórsson lögfræðingur, Björn Jóhannesson lögfræðingur og Guðfinna Eydal sálfræðingur.

Með kæru, móttekinni 29. maí 2023, kærði G lögmaður, f.h. A, til úrskurðarnefndar velferðarmála úrskurð umdæmisráðs B frá 17. maí 2023 vegna umgengni hennar við C.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Drengurinn C er X ára gamall. Kærandi er móðuramma drengsins.

Drengurinn hefur verið hjá sömu fósturforeldrum frá 21. janúar 2014 er hann var X. Fyrst var hann í tímabundnu fóstri en hefur verið í varanlegu fóstri frá 26. maí 2014. Fram að því að drengurinn fór í fóstur dvaldi hann á Landspítalanum og Vistheimili barna. Drengurinn hefur aldrei búið hjá foreldrum sínum. Móðir drengsins var svipt forsjá hans með dómi Héraðsdóms B þann 26. maí 2014.

Drengurinn á eldri bróður, D, sem er fæddur X og er í varanlegu fóstri hjá föðurafa sínum og maka hans. C nýtur umgengni við D.

Kærandi mun einu sinni hafa hitt drenginn C. Var það á Vistheimili barna í eina klukkustund sama dag og hann fór til fósturforeldra sinna þann 21. janúar 2014.

Kærandi hefur áður óskað eftir því að fá umgengni við drenginn. Með úrskurði Barnaverndarnefndar B, dags. 18. mars 2014, var ákveðið að kærandi hefði ekki sérstaka umgengni við drenginn en fengi myndir af honum einu sinni á ári. Þeim úrskurði var skotið til kærunefndar barnaverndarmála (nú úrskurðarnefnd velferðarmála) sem staðfesti hann með úrskurði þann 9. júlí 2014 í máli nefndarinnar nr. 3/2014. Var það niðurstaða kærunefndarinnar að kærandi teldist ekki nákomin drengnum í þeim skilningi að tengslamyndun hefði ekki farið fram á milli hennar og drengsins.

Á árinu 2015 gerði kærandi að nýju kröfu um umgengni við drenginn. Var erindi hennar tekið fyrir á fundi Barnaverndarnefndar B 29. september 2015. Í bókun fundarins var vísað til úrskurðar kærunefndar barnaverndarmála í máli nr. 3/2014 og var talið að engar breytingar hefðu orðið í málinu sem gæfu tilefni til að ætla að það þjónaði hagsmunum drengsins að kærandi hefði umgengni við hann.

Kærandi óskaði enn á ný eftir umgengni við drenginn með beiðni, dags. 11. október 2016. Úrskurðað var í málinu á fundi Barnaverndarnefndar B þann 1. mars 2017 og ákveðið að kærandi hefði ekki umgengni við drenginn, enda teldist hún ekki nákomin honum í skilningi barnaverndarlaga nr. 80/2002 (bvl.). Málið var kært til úrskurðarnefndar velferðarmála, sbr. úrskurð í máli nr. 126/2017 frá 30. júní 2017. Í úrskurði úrskurðarnefndarinnar kom fram að þegar úrskurðað hafi verið í máli drengsins þann 9. júlí 2014 hafi aðstæður verið ólíkar þeim sem voru árið 2017. Á árinu 2014 hafi drengurinn, sem þá var X gamall, verið nýkominn í fóstur og þurft frið og ró til að geta myndað varanleg, heilbrigð og góð geðtengsl við fósturforeldra sína. Það hafi ekki verið tilefni til að drengurinn myndaði geðtengsl við aðra en fósturforeldra á þessum tíma. Því hafi ekki komið til álita að kærandi tengdist drengnum. Þá taldi úrskurðarnefndin mikilvægt að taka sérstakt tillit til fósturforeldranna til að valda þeim ekki óþarfa spennu og hugsanlegri togstreitu með því að kærandi hefði samskipti við drenginn þannig að fósturforeldrar gætu einbeitt sér að því mikilvæga verkefni að tengjast drengnum. Í úrskurði nefndarinnar í máli nr. 126/2017 tók úrskurðarnefndin fram að tengslamyndun hefði gengið vel og drengurinn hefði fengið tækifæri til að tengjast fósturforeldrum eins og um kynforeldra væri að ræða. Drengurinn myndi ekki mynda sterk geðtengsl við aðra en þau þar sem djúptengslamyndun væri lokið. Úrskurðarnefndin tók fram að uppi væri önnur staða en áður og eðlilegt væri að amma drengsins, þ.e. kærandi, fengi möguleika til að sjá drenginn og hafa einhver samskipti við hann. Úrskurðarnefndin taldi að slík umgengni gæti þjónað hagsmunum drengsins. Þá bæri ekki síst að líta til þess að drengurinn ætti albróður sem hefði tengsl við kæranda og bræðurnir hefðu tengsl sín á milli. Ef samband bræðranna héldist áfram væri staða þeirra mjög ójöfn gagnvart kæranda sem væri líffræðilega skyld þeim báðum. Það kynni að valda C hugarangri og vanlíðan að uppgötva seinna meir að bróðir hans ætti samskipti við kæranda en hann ekki. Kærandi væri náskyld C en ekki nátengd honum þar sem tengslin væru engin. Þegar drengurinn hefði aldur og þroska til gæti hann sjálfur metið og ákveðið hvort hann vildi hafa samband við kæranda eða ekki. Úrskurðarnefndin taldi að það væri réttur drengsins að honum væru búnar þær aðstæður sem gerðu honum kleift að taka sínar eigin ákvarðanir í framtíðinni varðandi umgengni við kæranda og hefði verið horft fram hjá framangreindum atriðum í úrskurði barnaverndarnefndar og því hafi ekki verið lagður réttur grunnur að málinu við úrlausn þess. Málinu var því vísað til barnaverndarnefndarinnar til meðferðar að nýju með vísan til 4. mgr. 51. gr. bvl.

Barnaverndarnefnd B tók málið aftur til meðferðar og að nýju var úrskurðað í málinu á fundi nefndarinnar þann 27. febrúar 2018 á grundvelli 4. mgr. 74. gr. bvl. og ákveðið að kærandi hefði ekki umgengni við drenginn, enda teldist hún ekki nákomin honum í skilningi bvl. Sá úrskurður var kærður til úrskurðarnefndar velferðarmála. Með úrskurði úrskurðarnefndarinnar 26. júní 2018 í máli nr. 120/2018 var úrskurðurinn felldur úr gildi og málinu vísað til meðferðar barnaverndarnefndarinnar að nýju. Í niðurstöðu úrskurðar úrskurðarnefndarinnar sagði að við áframhaldandi vinnslu málsins hjá Barnavernd B og Barnaverndarnefnd B væri óhjákvæmilegt annað en að leggja til grundvallar það sem fram kæmi í niðurstöðu úrskurðar úrskurðarnefndar velferðarmála frá 30. júní 2017 í máli nr. 126/2017 varðandi umgengni kæranda við drenginn. Við úrlausn málsins yrði ekki hjá því komist að líta til þess að drengurinn ætti rétt á umgengni við þá sem væru honum nákomnir ef það samrýmdist hagsmunum hans, sbr. 1. mgr. 70. gr. bvl., sbr. 38. gr. og 1. mgr. 74. gr. sömu laga. Úrskurðarnefndin teldi það samrýmast hagsmunum drengsins að fá að þekkja kæranda með vísan til framangreindra forsendna. Að mati úrskurðarnefndarinnar ógnaði það engan veginn tengslamyndum drengsins að fá tækifæri til að þekkja kæranda þar sem frumtengsl myndist mest á fyrstu tveimur árum barns og því mætti ætla að þeim væri lokið. Úrskurðarnefndin taldi að það væri málefnalegt sjónarmið að bræðurnir, D og C, fengju báðir möguleika til að kynnast kæranda. Ef hagsmunir C væru settir í brennidepil og aðilar legðu sig fram við að ná fram farsælli lausn væru forsendur fyrir því að drengurinn fengi að kynnast kæranda. Þar sem deilur og togstreita hafi litað málið væri augljóst að til þess að árangur myndi nást þyrfti að vinna málið í litlum skrefum, gefa sér góðan tíma í aðlögun og takmarka umgengni verulega í upphafi.

Enn tók Barnaverndarnefnd B málið til meðferðar og úrskurðaði þann 26. nóvember 2018 að drengurinn skyldi eiga umgengni við kæranda einu sinni á ári í eina klukkustund í senn, undir eftirliti og á þeim stað sem fósturforeldrar teldu góðan fyrir barnið. Fósturforeldrum væri heimilt að vera viðstaddir umgengni. Sá úrskurður var kærður til úrskurðarnefndar velferðarmála þann 18. desember 2018 og fjallaði úrskurðarnefnd velferðarmála um málið í úrskurði sínum í máli nr. 448/2018 frá 15. mars 2018. Úrskurðarnefndin staðfesti ákvörðun barnaverndarnefndarinnar með þeim rökum að kærandi hefði þegar umgengni við bróður drengsins annan hvorn laugardag og hefði byggt upp tengsl við hann undanfarin ár. C hefði tengsl við bróður sinn og væri staða þeirra gagnvart kæranda ólík að því leyti að annar þeirra hefði mikil tengsl við hana en hinn ekki. Á hinn bóginn væru samskipti og tengsl á milli bræðranna og trúlegt að svo yrði áfram. Eins og fram kæmi í úrskurði nefndarinnar í máli nr. 120/2018 telji úrskurðarnefndin af þeim sökum það réttlætismál fyrir C að hann fengi tækifæri til að þekkja kæranda og það væri honum til hagsbóta að hafa raunhæfan möguleika á að kynnast henni til þess að geta ákveðið sjálfur í framtíðinni hvort hann vilji hafa samband við kæranda eða ekki. Við úrlausn málsins bæri að leggja þessar aðstæður til grundvallar við mat á því hvað þjóni best hagsmunum drengsins. Þá tók úrskurðarnefndin fram að málið yrði að vinna í litlum skrefum, gefa drengnum góðan tíma til aðlögunar og því yrði umgengni takmörkuð í upphafi.

Fósturforeldrar drengsins stefndu Barnaverndarnefnd B og kæranda fyrir Héraðsdóm B og kröfðust þess að úrskurður nefndarinnar í máli nr. 448/2018 yrði felldur úr gildi. Með dómi Héraðsdóms B, dags. 9. september 2020 í máli nr. E-6187/2019, var fyrrgreindur úrskurður úrskurðarnefndar velferðarmála felldur úr gildi. Í niðurstöðu dómsins kom fram að ekki hafi verið sýnt fram á að ein klukkustund á ári í umgengni við kæranda væri drengnum til hagsbóta. Líta yrði til fleiri atriða en nefndin hefði gert við mat á því hvort það væri drengnum til hagsbóta að hefja umgengni við kæranda. Þá benti dómurinn á að drengurinn ætti við erfiðleika að stríða. Hann væri með nokkrar greiningar og væri enn í greiningarferli. Auk þess hefði fósturmóðir drengsins veitt trúverðuga lýsingu fyrir dómi á líðan drengsins. Að þessu virtu var það niðurstaða héraðsdóms að skilyrði 2. mgr. 74. gr. barnaverndarlaga væru ekki uppfyllt og úrskurður úrskurðarnefndar velferðarmála væri því haldinn slíkum annmörkum að ekki væri hjá því komist að fella hann úr gildi.

Þann 12. október 2021 gerði kærandi enn á ný kröfu um umgengni við drenginn annan hvorn laugardag, auk þess að fá sendar myndir af drengnum ársfjórðungslega, alls 12 myndir á ári hverju. Ekki náðist samkomulag um fyrirkomulag umgengni og var mál drengsins því lagt fyrir Barnaverndarnefnd B sem tók málið til úrskurðar þann 9. júní 2022. Niðurstaða úrskurðar Barnaverndarnefndar var að C skyldi ekki eiga umgengni við kæranda. Sá úrskurður var kærður til úrskurðarnefndar velferðarmála þann 23. júní 2023 og fjallaði úrskurðarnefnd velferðarmála um málið í úrskurði sínum í máli nr. 327/2022 frá 22. október 2022. Úrskurðarnefndin taldi að C hefði aldur til að láta í ljós skoðun sína og afstöðu til umgengni við kæranda. Þá taldi nefndin að aðstæður C væru ekki þær sömu og þær voru þegar héraðsdómur B kvað upp dóm sinn í málinu. Enn fremur gerði úrskurðarnefndin athugasemdir við það að barnaverndarnefnd hefði í úrskurði sínum ekki tekið afstöðu til þeirrar kröfu kæranda að fá sendar myndir af C ársfjórðungslega. Málið þótti því ekki hafa verið nægilega rannsakað og var hinn kærði úrskurður barnaverndarnefndar B felldur úr gildi og málinu vísað til nýrrar meðferðar fyrir nefndinni.

Umdæmisráð B tók málið til meðferðar og úrskurðaði þann 17. maí 2023 að drengurinn skyldi ekki eiga umgengni við kæranda. Þá vísaði umdæmisráð frá kröfu kæranda um að fá sendar þrjár ljósmyndir af drengnum ársfjórðungslega.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála þann 29. maí 2023. Með bréfi úrskurðarnefndar velferðarmála, dags. 31. maí 2023, var óskað eftir greinargerð Barnaverndarnefndar B ásamt gögnum málsins. Greinargerð Barnaverndarnefndar B barst nefndinni þann 22. júní 2023. Með bréfi úrskurðarnefndar velferðarmála, dags. 28. júní 2023, var greinargerðin send lögmanni kæranda til kynningar. Frekari athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi gerir kröfu um að úrskurður umdæmisráðs B, dags. 17. maí 2023, verði felldur úr gildi og að hún fái umgengni við barnið einu sinni í mánuði í fjórar klukkustundir í senn. Jafnframt krefst hún þess að fá sendar þrjár ljósmyndir af drengnum ársfjórðungslega, samtals 12 myndir á ári, og að myndirnar verði teknar 1. til 10. hvers mánaðar af drengnum sjálfum í fókus.

Kærandi gerir alvarlegar athugasemdir við málshraðann hjá barnavernd B og hjá umdæmisráði B.

Þann 9. júní 2022 hafi barnaverndarnefnd B kveðið upp úrskurð þess efnis að kærandi myndi ekki njóta umgengni við barnið. Úrskurðurinn hafi þá sem nú verið kærður til úrskurðarnefndar velferðarmála. Úrskurðarnefndin hafi kveðið upp sinn úrskurð í máli nr. 327/2022, þann 28. október 2022. Í úrskurði úrskurðarnefndar velferðarmála hafi verið felldur úr gildi úrskurður barnaverndarnefndar B, dags. 9. júní 2022, og málinu verið vísað til nýrrar meðferðar hjá nefndinni. Málið hafi svo farið fyrir umdæmisráð B (áður barnaverndarnefnd B) þann 21. mars 2023. Kærandi hafi skilað inn greinargerð sinni til umdæmisráðs þann 23. mars 2023 en fósturforeldrar hafi ekki skilað sinni greinargerð inn fyrr en þann 18. apríl og loks hafi kærandi skilað inn athugasemd við greinargerð fósturforeldra þann 9. maí síðastliðinn. Úrskurður í málinu hafi svo verið kveðinn upp þann 17. maí 2023. Þannig að ferlið frá úrskurði úrskurðarnefndar velferðarmála til úrskurðar umdæmisráðs B hafi verið tæplega sjö mánuðir alls. Þá veki það furðu hversu langan tíma fósturforeldrar fái ávallt til að skila inn sínum greinargerðum, en iðjulega hafi þau fengið fresti ofan á fresti hjá barnavernd B.

Úrskurður úrskurðarnefndar velferðarmála í máli nr. 327/2022 hafi verið vísað á ný til barnaverndarnefndar B (nú umdæmisráð B) á þeim forsendum að málið hefði ekki verið nægjanlega upplýst með vísan til 1. mgr. 41. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002, sbr. 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Þá hafi verið bent á að ekki hefði verið aflað skýrslu talsmanns frá drengnum né hefði verið tekin afstaða til kröfu kæranda um myndir af drengnum ársfjórðungslega.

Í hinum kærða úrskurði sé meðal annars vísað til dóms Héraðsdóms B í máli nr. E- 6187/2019, þar sem að staðfest hafi verið að kærandi væri náskyld drengnum og að hún væri hluti af upprunafjölskyldu drengsins og teldist því nákomin honum í skilningi 2. mgr. 74. gr. barnaverndarlaga. Það skal tekið fram að dómurinn hafi talið það vera eðlilegt að drengurinn myndi þekkja ömmu sína, en að svo stöddu væri það ekki barninu fyrir bestu.

Í úrskurði úrskurðarnefndar velferðarmála í máli nr. 327/2022 komi eftirfarandi fram:

„Samkvæmt 1. mgr. 74. gr. bvl. á barn í fóstri rétt á umgengni við kynforeldra og aðra sem eru því nákomnir. Kynforeldrar eiga með sama hætti rétt á umgengni við barn sitt samkvæmt 2. mgr. sömu lagagreinar, nema umgengni sé bersýnilega andstæð hagsmunum og þörfum barnsins og ósamrýmanleg þeim markmiðum sem stefnt er að með ráðstöfun þess í fóstur.“

Umgengni kæranda við barnabarn sitt sé ekki bersýnlega andstæð hagsmunum og þörfum barnsins né sé umgengnin ósamrýmanleg þeim markmiðum sem stefnt sé að með ráðstöfun barnsins í fóstur. Barnið muni áfram búa við stöðugleika og jafnframt búa áfram hjá fósturforeldrum.

Í 2. mgr. 74. gr. barnaverndarlaga komi meðal annars fram að þeir sem telji sig vera nákomnir barni eigi rétt til umgengni við barnið, enda verði talið að það sé til hagsbóta fyrir barnið. Í 1. mgr. 74. gr. laganna, sé tekið fram að með umgengni sé átt við samveru og önnur samskipti.

Vissulega komi fram í skýrslu talsmanns að drengurinn hafi takmarkaðan áhuga á að hitta kæranda. Að mörgu leyti sé það ekki skrýtið að drengurinn hafi takmarkaðan áhuga á að kynnast kæranda enda viti hann ekki hver hún sé þar sem að barnaverndaryfirvöld hafi komið í veg fyrir það að barnið fái að kynnast móðurömmu sinni, kæranda þessa máls. Þá sé vitað að fósturforeldrar vilji ekki að barnið kynnist móðurömmu sinni enda hafi þau farið í mál til að koma í veg fyrir eina umgengni á ári. Það sé því hæpið að fósturforeldrar hafi tjáð barninu að það ætti ömmu sem hafi viljað fá að hitta það. Kærandi telji alveg ljóst að afstaða fósturforeldra gæti haft all veruleg áhrif á afstöðu barnsins. Jafnframt telji kærandi alveg ljóst að það yrði barninu til hagsbóta að kynnast sér, enda leiti börn alltaf uppruna síns og þá ekki síðast börn sem hafi verið ættleidd og fósturbörn. Þá sé almennt talið öllum börnum til góðs að þekkja fjölskyldu sína, einnig fósturbörnum og börnum sem hafi hinar ýmsar greiningar. Greiningar, svo sem ódæmigerð einhverfa, ADHD, kæki og kvíðaeinkenni, komi ekki í veg fyrir að barnið geti kynnst fólki. Barnið hafi til að mynda þurft að kynnast kennurum sinum, börnum í skólanum, greiningaraðilum og svo framvegis.

Kærandi vilji barninu vel og auðvitað vilji hún fá að kynnast barnabarninu sínu. Hún hafi ekki í hyggju að raska stöðugleika barnsins. Þess vegna geri hún sér grein fyrir því að það þurfi að fara varlega í upphafi. Drengurinn sé í dag á X ári, en hann verði X ára í X. Hann sé búinn að fá sínar greiningar og sé komin á sín lyf og það sé kominn stöðugleiki hjá barninu. Stöðugleikinn muni ekki fara forgörðum þó svo að drengurinn fái að hitta kæranda einu sinni í mánuði í örfáa klukkutíma. Þvert á móti muni það gagnast drengnum að fá að vita það að hann eigi aðra fjölskyldu þarna úti, það sé fólk þarna úti sem þyki vænt um hann og vilji allt gera fyrir drenginn. Það standi ekki til að taka drenginn af fósturfjölskyldunni né standi til að raska stöðugleika drengsins. Kærandi geri sér þannig grein fyrir því að hagsmunir drengsins þurfi að vera í fyrirrúmi og þess vegna þurfi að vinna málið í litlum skrefum til þess að viðunandi árangur náist eins og komi meðal annars fram í úrskurði úrskurðarnefndar velferðarmála í máli nr. 448/2018.

Varðandi kröfu um að fá senda ljósmyndir af drengnum ársfjórðungslega, þá sé því alfarið mótmælt sem röngu að ekki verði séð að sendingar fósturforeldra á ljósmyndum af drengnum flokkist sem samskipti á milli drengsins og móðurömmu þess eins og þau séu skilgreind í 2. ml. 1. mgr. 74. gr. og 2. mgr. 81.gr. barnaverndarlaga. Það fari þvert gegn úrskurði barnaverndarnefndar Reykjavíkur frá 18. mars 2014, sem einmitt hafi úrskurðað að kærandi skyldi fá myndir af drengnum. Í kjölfarið hafi kærandi fengið sendar myndir af drengnum og kærunefnd barnaverndarmála hafi staðfest þá niðurstöðu að kærandi fengi ljósmyndir af barninu, með úrskurði nr. 3/2014 enda hafi kærunefndin talið að lögmæt sjónarmið hafi legið að baki ákvörðuninni um afhendingu ljósmynda af barninu.

Að öðru leyti en því sem hér vísist til greinargerðar kæranda til umdæmisráðs B, dags. 23. mars 2023.

Það megi öllum vera ljóst að kærandi sé nátengd barninu, og það sé ekki bersýnlega andstætt hagsmunum barnsins að eiga umgengni við hana, heldur sé það þvert á móti barninu til hagsbóta að fá að kynnast kæranda, móðurömmu sinni og fá að eiga umgengni við hana.


 

III. Sjónarmið Barnaverndarnefndar B

Í greinargerð Barnaverndarnefndar B segir að þann 28. október 2022 hafi úrskurðanefnd velferðarmála fellt úr gildi úrskurð barnaverndarnefndar B, dags. 9. júní 2022, í máli nr. 327/2022. Í niðurstöðu úrskurðar úrskurðarnefndar hafi meðal annars verið vísað til þess að barnaverndarnefnd hafi í úrskurði sínum ekki tekið afstöðu til kröfu kæranda um að fá sendar myndir af drengnum ársfjórðungslega. Þá hafi málið ekki verið talið hafa verið rannsakað með fullnægjandi hætti með tilliti til þess að afstöðu drengsins hafi ekki verið aflað vegna beiðni kæranda um umgengni við hann.

Í kjölfar úrskurðar úrskurðarnefndar þann 28. október 2022 hafi verið farið í það að afla afstöðu drengsins vegna beiðni kæranda. Í skýrslu talsmanns, dags. 15. febrúar 2023, hafi komið fram að afstaða drengsins við að auka frekari umgengni eins og er hugnist honum ekki. Drengnum líði vel með hlutina eins og þeir séu í dag þar sem hann sé í umgengni við kynforeldra sína og vilji ekki auka á það eins og er. Drengurinn hafi ekki útilokað að hann gæti séð fyrir sér umgengni þegar hann yrði eldri og það mætti skoða það aftur síðan en að svo stöddu sé hann ekki tilbúinn í það. Fram hafi komið að drengurinn hafi virkað frekar ákveðin í afstöðu sinni að svo stöddu. Að mati sálfræðings drengsins sé það ekki drengnum til hagsbóta að sú umgengni sem kærandi óski eftir eigi stað að svo stöddu miðað við afstöðu hans í dag. Drengurinn vilji hafa rútínu og byggi öryggi sitt á því, að þvinga fram aðra niðurstöðu heldur en hann vilji sjálfur geti stuðlað að frekari ójafnvægi og gremju að mati sálfræðings drengsins. Þá sé drengurinn greindur inn á einhverfuróf með ADHD og kvíða og þessir þættir hafi í för með sér ríkari þörf á fyrirsjáaleika sem og áreitisstjórnun.

Málið hafi verið bókað á meðferðarfundi starfsmanna þann 22. febrúar 2023 vegna beiðni kæranda um umgengni. Þar komi fram það mat starfsmanna barnaverndar að ekki séu forsendur fyrir því að leggja til að kærandi fái umgengni við drenginn eins og hún óski eftir. Afstaða drengsins sé skýr, hann vilji ekki eiga umgengni við hana að svo stöddu. Þá leggist fósturforeldrar gegn umgengni og vísað sé til þess að staða drengsins hafi ekki breyst frá úrskurði Héraðsdóms, hann sé enn með greiningar, í þörf fyrir stöðugleika, fyrirsjáanleika og því ekki til hagsbóta að svo stöddu að eiga umgengni við kæranda. Þá hafi það verið mat starfsmanna barnaverndar að ekki væru forsendur fyrir því að kærandi fái sendar myndir af drengnum eins og hún hafi óskað eftir með vísan til persónuverndar og friðhelgi einkalífs sem drengurinn eigi rétt á samkvæmt 71. gr. stjórnarskrár Íslands og Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna.

Mál kæranda vegna umgengni hafi verið lagt fyrir fund umdæmisráðs B þann 21. mars 2023 og tekið til úrskurðar þann 17. maí 2023. Úrskurður umdæmisráðs sé vel rökstuddur og vísað sé til niðurstöðukafla úrskurðar vegna ítarlegs rökstuðnings fyrir honum. Þar sé meðal annars vísað til þess að gætt hafi verið að rétti drengsins til að þekkja uppruna sinn með umgengni hans við kynforeldra og bróður sinn. Vísað sé þá til forsendna í dómi Héraðsdóms B í máli nr. E-6187/2019 þar sem fram komi að kærandi sé vissulega náskyld drengnum og hluti af upprunafjölskyldu hans, sem drengurinn eigi rétt á að kynnast kjósi hann það. Í dómnum komi jafnframt fram að það nægi ekki eitt og sér til þess að fallist verði á að umgengni kæranda við drenginn. Umgengni þurfi jafnframt að vera talin drengnum til hagsbóta, sbr. skilyrði 2. mgr. 74. gr. barnaverndarlaga.

Vegna beiðni kæranda um myndsendingar af drengnum þá eins og fram hafi komið hafi starfsmenn lagst gegn því að hún fengi sendar slíkar myndir í bókun starfsmanna þann 22. febrúar 2023. Í úrskurði umdæmisráðs þann 17. maí 2023 sé vísað til þess að í 3. mgr. 13. gr. barnaverndarlaga, sbr. lög nr. 107/2021, sé tæmandi talið upp það sem umdæmisráð hafi heimild til að úrskurða um. Í 5. tl. ákvæðisins komi fram að umgengni í fóstri og við vistun, sbr. 74. og 81. gr., sé meðal þess sem umdæmisráð úrskurði um. Í 2. ml. 1. mgr. 74. gr. og 2. ml. 1. mgr. 81. gr. barnaverndarlaga komi fram að með umgengni sé átt við samveru og önnur samskipti, án þess að það sé skilgreint nánar. Í athugasemdum með 74. gr. í frumvarpi sem hafi orðið að barnaverndarlögum komi fram að átt sé við gagnkvæm samskipti milli foreldris eða nákomins og barns, „... beinan umgengnisrétt, auk annarra samskipta, svo sem í gegnum síma, bréfaskipti og þess háttar.“ Verður framangreint skilið svo að í umgengni felist í fyrsta lagi að barn hitti umgengnisaðila í eigin persónu eða að notast sé við aðrar samskiptaleiðir, sem ekki séu tæmandi taldar. Þær leiðir sem nefndar séu sem dæmi bendi þó til að ákvæðið einskorðist við að það sé barnið og umgengnisaðilinn sem eigi gagnkvæm samskipti sín á milli. Ráðið hafi því ekki getað séð að sendingar fósturforeldra á ljósmyndum af drengnum hafi flokkast sem umgengni og því hafi tillögu vegna myndsendinga verið vísað frá umdæmisráði eins og nánar sé rakið í umræddum úrskurði.

Í 74. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002 sé fjallað um umgengni í fóstri. Þar segi í 1. mgr. að barn eigi rétt til umgengni við kynforeldra og aðra sem því séu nákomnir. Með umgengni sé átt við samveru og önnur samskipti. Þá segi í 2. mgr. meðal annars að kynforeldrar eigi rétt til umgengni við barn í fóstri nema umgengni sé bersýnilega andstæð hagsmunum og þörfum barnsins og ósamrýmanleg þeim markmiðum sem stefnt sé að með ráðstöfun þess í fóstur. Við mat á þessu skuli meðal annars taka tillit til þess hversu lengi fóstri sé ætlað að vara. Þá segi enn fremur að þeir sem telji sig nákomna barninu eigi með sama hætti rétt til umgengni við barnið enda verði talið að það sé til hagsbóta fyrir barnið.

Í athugasemdum við 74. gr. í frumvarpi komi fram að þegar um aðra nákomna sé að ræða sé tekið þannig til orða að umgengni sé barninu til hagsbóta. Samkvæmt þessu orðalagi sé réttur þessara aðila ekki jafnríkur og kynforeldra. Enn fremur komi fram að við ákvörðun um umgengni verði barnaverndarnefnd að meta hagsmuni og þarfir barns og gæta þess að umgengni sé í samræmi við markmiðin með fóstri. Þannig verði almennt að gera ráð fyrir ríkari umgengni ef fóstri sé ætlað að vara í skamman tíma og áætlað að barn snúi aftur til foreldra sinna. Ályktun frá athugasemdum þessum leiði til þess að almennt sé gert ráð fyrir takmarkaðri umgengni þegar börn séu vistuð í varanlegu fóstri, auk þess sem við túlkun á skilyrðum 74. gr. barnaverndarlaga verði að taka mið af því að réttur annarra nákominna sé ekki jafnríkur og kynforeldra. Við úrlausn mála sem þessara beri að meta hvort sá sem óski eftir umgengni teljist nákominn barni í skilningi 2. mgr. 74. gr. barnaverndarlaga. Eins og fram komi í athugasemdum lagaákvæðinu í frumvarpi meti barnaverndarnefnd hvort aðili teljist nákominn barni í skilningi lagaákvæðisins. Við lögskýringu á lagaákvæðinu verði að líta til þess að ætlun löggjafans hafi verið sú að túlka bæri það hverjir teldust nákomnir barni út frá stöðu barnsins og hagsmunum þess.

Í máli drengsins sé það óumdeilt að hann þekki ekki kæranda, hann hafi hitt hana einu sinni, þá aðeins mánaðargamall í klukkustund á vistheimili barna, og það hafi því engin tengslamyndun átt sér stað á milli þeirra. Samkvæmt 2. mgr. 74. gr. barnaverndarlaga verði að uppfylla tvö skilyrði vegna umgengni, annars vegar að kærandi teljist vera nákomin drengnum og hins vegar að umgengni drengsins við kæranda teljist drengnum til hagsbóta. Hugtakið nákomin aðili samkvæmt 2. mgr. 74. gr. barnaverndarlaga sé þannig túlkað að það nái eingöngu til þeirra aðila sem hafi myndað tengsl við barnið. Hafi tengslamyndun ekki farið fram væri verið að búa til tengsl á milli sem myndu aldrei verða náin því tengslin yrðu afar lítil, sbr. niðurstöður í máli nr. 420/2017 hjá úrskurðarnefnd velferðarmála.

Gögn málsins sýni að drengurinn sé afar viðkvæmur, þoli illa breytingar og sé því mikilvægt að hlúa að honum, efla hann andlega og líkamlega og tryggja þannig uppeldi hans og umönnun innan fósturfjölskyldunnar. Umönnun drengsins sé krefjandi og hafi fósturforeldrar lýst því að drengurinn hafi áður farið úr jafnvægi eftir að hann hafi rætt við talsmann og að það hafi tekið nokkra mánuði fyrir drenginn að verða sjálfum sér líkur aftur.

Ljóst sé að seinna skilyrði 2. mgr. 74. gr. barnaverndarlaga sé ekki uppfyllt en samkvæmt skýrslu talsmanns vilji drengurinn ekki eiga umgengni við kæranda að svo stöddu. Þá sé það einnig mat sálfræðings drengsins að það sé drengnum ekki til hagsbóta að umgengni við kæranda eigi sér stað miðað við afstöðu hans sem væri þá gegn hans vilja. Drengurinn þurfi rútínu og byggi öryggi sitt á því og að þvinga fram aðra niðurstöðu gegn vilja drengsins geti stuðlað að frekari ójafnvægi og gremju hjá drengnum sem sé í ríkari þörf fyrir fyrirsjáanleika vegna greininga og stöðu hans.

Í 1. mgr. 74. gr. a barnaverndarlaga komi fram að ávallt skuli kanna viðhorf fósturforeldra til umgengni áður en gengið sé frá samningi eða kveðinn sé upp úrskurður um umgengni. Í 2. mgr. 74. gr. a komi fram að fósturforeldrar barns í varanlegu fóstri séu aðilar máls. Fósturforeldrar séu að jafnaði þeir aðilar sem þekki hagi og líðan barnanna best, sbr. álit umboðsmanns Alþingis, dags. 7. apríl 2006 í máli nr. 4474/2005. Það sé vel þekkt meðal fósturbarna að regluleg endurskoðun á umgengni geti haft í för með sér álag og verið íþyngjandi fyrir fósturbörn og fósturforeldra.

Fósturforeldrar hafi sent afstöðu sína vegna málsins til barnaverndar þann 20. febrúar 2023. Fram hafi komið að fósturforeldrar séu í algjörri andstöðu við myndsendingar af drengnum og telji að senda slíkar myndir á konu sem hann hafi aldrei hitt og vilji ekki hitta, með vísan í skýrslu talsmanns, gangi gegn hans persónuvernd og friðhelgi. Þá vísi fósturforeldrar til þess að í gegnum árin hafi allar beiðnir kæranda verið þess efnis að líf og líðan drengsins skipti hana ekki máli heldur aðeins hennar réttur sem hún telji vera ofar öllu, sama hvað eða hvernig það hafi áhrif á drenginn. Þá hafi fósturforeldrar tekið undir skýrslu talsmanns drengsins um að ekki væri ráðlagt að knýja fram umgengni gegn vilja drengsins og það sé honum ekki til hagsbóta út frá hans stöðu. Fósturforeldrar hafi viljað að afstaða þeirra yrði lögð orðrétt fram fyrir ráðið.

Þá geri lögmaður kæranda alvarlegar athugasemdir við málshraða hjá Barnavernd B og einnig hjá umdæmisráði B. Rétt sé að benda á að með lagabreytingu á barnaverndarlögum sem hafi tekið endalega gildi um síðustu áramót hafi barnaverndarnefndir verið lagðar niður og í þeirra stað hafi komið umdæmisráð barnaverndar. Barnavernd B heyri ekki undir umdæmisráð B eins og áður hafi verið þegar barnavernd hafi verið undir barnaverndarnefndum. Umdæmisráð B sé sjálfstætt í sínum störfum og sé því rétt að beina athugasemdum við þeirra störf til þeirra. Vegna málshraða málsins hjá Barnavernd B hafi verið reynt að vinna málið fljótt og örugglega. Eftir að úrskurður úrskurðarnefndar velferðarmála hafi verið kveðinn upp hafi verið farið í að vinna í því að finna talsmann fyrir drenginn og hafi skýrsla legið fyrir þann 15. febrúar. Óskað hafi verið eftir afstöðu fósturforeldra og málið svo bókað hjá barnavernd þann 22. febrúar þegar sú afstaða hafi legið fyrir. Málið hafi verið lagt fyrir fund umdæmisráðs þann 21. mars 2023.

Það sé mat Barnverndar B að ekki séu forsendur fyrir því að svo stöddu að kærandi eigi umgengni við drenginn. Staða drengsins hafi ekki breyst frá úrskurði Héraðsdóms frá 9. september 2020 og því ekki til hagsbóta fyrir drenginn að eiga umgengni við kæranda gegn hans vilja. Þá hafi það komið fram hjá sálfræðingi drengsins að það séu ekki hagsmunir hans að þvinga fram umgengni gegn vilja hans. Fósturforeldrar séu jafnframt mótfallin umgengni. Það séu því lögvarðir hagsmunir drengsins sem sé í varanlegu fóstri að hann búi við stöðugleika, frið og ró í fóstrinu en hann eigi umgengni við báða kynforeldra sína og bróður og þekki því uppruna sinn. Drengurinn sé viðkvæmur, óöruggur og þoli illa allar breytingar eins og gögn málsins sýni.

Meginregla barnaverndarlaga sé sú að í barnaverndarstarfi skuli jafnan beita þeim ráðstöfunum sem ætla megi að séu barni fyrir bestu. Þessi regla vísi til sjálfstæðs réttar barnsins þar sem hagsmunir þess skuli skipa öndvegi. Aðrir hagsmunir, svo sem hagsmunir foreldra eða annarra ættingja, verði þar af leiðandi að víkja ef þeir stangist á við hagsmuni barnsins, sbr. 1. tl. 3. gr. samnings sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins.

Í ljósi framangreinds, allra gagna málsins og með hagsmuni drengsins að leiðarljósi og með vísan til forsendna í niðurstöðu úrskurðar umdæmisráðs B þann 17. maí 2023 sé gerð krafa um að hinn kærði úrskurður verði staðfestur.

IV. Afstaða drengsins

Drengnum var skipaður talsmaður sem tók viðtal við hann 6. febrúar 2023. Í skýrslu talsmanns kemur fram að hann hafi fylgt drengnum síðan í leikskóla og að drengurinn þekki hann því ágætlega. Drengurinn hafi verið rólegur og yfirvegaður við komu og gefið greinargóð svör við spurningum talsmanns. Aukinn umgengni hugnist honum ekki líkt og staðan sé í dag. Drengnum líði vel með hlutina eins og þeir séu í dag en útiloki ekki að hann gæti séð fyrir sér umgengni þegar hann verði eldri en nú sé hann ekki tilbúinn í það. Að mati talsmanns hafi drengurinn virkað frekar ákveðinn í afstöðu sinni. Talsmaður taldi það ekki drengnum til hagsbóta að umgengni við kæranda ætti sér stað miðað við afstöðu drengsins. Drengurinn vilji hafa rútínu og byggi öryggi sitt á því. Að þvinga fram aðra niðurstöðu heldur en hann vilji sjálfur geti stuðlað að frekara ójafnvægi og gremju. Að mati talsmanns verði einnig að hafa til hliðsjónar að drengurinn sé greindur inn á einhverfurófi með ADHD og kvíða og þeir þættir hafi í för með sér ríkari þörf fyrir fyrirsjáanleika sem og áreitisstjórnun.

V. Afstaða fósturforeldra

Með tölvupósti til lögmanns fósturforeldra, dags. 31. ágúst 2023, var óskað eftir afstöðu þeirra til krafna kæranda um umgengni. Í svari lögmanns kæranda, dags. 13. september 2023, kemur fram að fósturforeldrar krefjist þess að hinn kærði úrskurður verði staðfestur. Óumdeilt sé að drengurinn þekki ekki kæranda og engin tengslamyndun hafi farið fram þeirra á milli. Engu að síður sé fósturforeldrum að sjálfsögðu kunnugt um rétt drengsins til að þekkja uppruna sinn og vera í samvistum við upprunafjölskyldu sína. Fósturforeldrar benda þó á að drengurinn sé nú þegar í umgengni við móður sína, föður sinn og bróður sinn, samtals um það bil sex til átta sinnum á ári. Að mati fósturforeldra geti það ekki verið drengnum til hagsbóta að bæta enn þar í enda hafi hann enga sjálfstæða þörf fyrir umgengni við kæranda.

Það sé mat og sannfæring fósturforeldra að sú umgengni sem nú þegar sé til staðar sé nægileg til að drengurinn fái notið þeirra réttinda og þekki uppruna sinn og viðhaldi tengslum við upprunafjölskyldu. Það geti þannig ekki verið honum til hagsbóta að bæta inn fleiri aðilum. Allra síst geti það verið honum til hagsbóta að bæta inn í umgengnina aðilum sem óumdeilt sé að séu með öllu ótengdir honum.

Með vísan til niðurstöðu umdæmisráðs, forsögu málsins og þeirra gagna sem fyrir liggi telji fósturforeldrar að sýnt hafi verið fram á með óyggjandi hætti að lagaskilyrði séu ekki til staðar til að fallast á kröfur kæranda og að staðfesta beri hinn kærða úrskurð.

Fósturforeldrar vísa til athugasemda þeirra sem sendar hafi verið umdæmisráði þann 18. apríl 2023. Þar segi að þau hafi ætíð byggt málsástæður sínar og lagarök á því að það sé grundvallarskilyrði að sá aðili utan kynforeldra sem æski umgengni við fósturbarn, verði að teljast barninu nákomið samkvæmt 2. mgr. 74. gr. barnaverndarlaga nr. 80/2002. Auk þess krefjist hið sama lagaákvæði þess að sá sem æski umgengni verði að sýna fram á að umgengni sé talin til hagsbóta fyrir viðkomandi barn.

Bæði skilyrðin þurfi að vera uppfyllt og það hafi verið afstaða fósturforeldra að hvorugt skilyrði lagaákvæðisins sé uppfyllt í málinu og því sé ekki tilefni til að ákveða umgengni drengsins við kæranda.

Drengurinn hafi átt við erfiðleika að stríða allt frá unga aldri. Hann sé með ýmsar greiningar og sé umönnun hans krefjandi. Þá sé hann afar viðkvæmur fyrir breytingum og öllu því sem raski ró hans eða öryggi í fjölskylduaðstæðum sínum. Endanleg greining frá Þroska og hegðunarstöð hafi legið fyrir í janúar 2021 og staðfesti allt það sem fyrri gögn hafi sýnt um líðan og hegðun hans. Í greiningunni komi fram að drengurinn sé með ódæmigerða einhverfu, ADHD, kæki og kvíðaeinkenni en einnig sé hann með vitsmunaþroska yfir meðallagi. Við lestur skjalsins komi glöggt fram hvaða erfiðleika drengurinn glími við vegna greininga sinna og hversu krefjandi umönnun hans sé, bæði heimavið og í skólanum. Þannig telja fósturforeldrar það sannað með gögnum málsins að staða drengsins sé viðkvæm og erfið.

Drengurinn eldist og þroskast með ári hverju og jafnframt liggi fyrir að á árinu 2022 hafi hann byrjað á lyfjum sem hjálpi líðan hans. Auk þess liggi að baki mikið samstarf fósturforeldra við ýmiskonar fagaðila auk leikskóla og skóla um málefni drengsins til að ná þeim árangri með líðan hans. Með vísan til þess séu fósturforeldrar sannfærðir um að drengurinn hafi gríðarlega hagsmuni af því að hann megi halda áfram að búa við stöðugleika, frið og ró með fósturfjölskyldu sinni. Að gera einhvers konar tilraunir með umgengni við aðila sem hann kunni engin deili á geti ekki verið honum til hagsbóta og hann sé í engri þörf fyrir slíkt.

Til viðbótar hafi afstöðu drengsins nú verið aflað með tilstuðlan fagaðila og niðurstaða þess sé skýr. Drengnum hugnist ekki frekari umgengni við upprunafjölskyldu sína og hafi hann verið ákveðinn í þeirri afstöðu sinni. Þá sé það mat sérfræðingsins að þvinga fram umgengni engu að síður gegn vilja drengsins, gæti stuðlað að ójafnvægi og gremju auk þess að greiningar drengsins hafi í för með sér ríka þörf fyrir fyrirsjáanleika í lífi drengsins sem og áreitisstjórnun.

Varðandi kröfu kæranda um afhendingu á myndum af drengnum þá taka fósturforeldrar undir afstöðu starfsmanna barnaverndar að ekki séu forsendur fyrir afhendingu mynda. Hvergi í barnaverndarlögum sé gert ráð fyrir afhendingu á myndum sem hluta af tilhögun umgengni fósturbarna við upprunafjölskyldu sína. Í 1. mgr. 74. gr. barnaverndarlaga sé umgengni skilgreind sem samvera og önnur samskipti. Í athugasemdum við ákvæðið í frumvarpinu sem hafi orðið að barnaverndarlögum sé tiltekið að með umgengni sé átt við beinan umgengnisrétt, auk annarra samskipta, svo sem í gegnum síma, bréfaskipti og þess háttar. Taka beri fram að ákvæði þessu hafi ekki verið breytt frá upphaflegri lagasetningu árið 2002.

Að framangreindu virtu beri að draga þá ályktun að einhliða myndsendingar falli ekki undir hugtakið umgengni.

VI.  Niðurstaða

Drengurinn, C, er X ára gamall og er í varanlegu fóstri hjá fósturforeldrum sínum. Kærandi er móðuramma drengsins.

Með hinum kærða úrskurði var ákveðið að drengurinn hefði enga umgengni við kæranda. Þá vísaði umdæmisráð B frá kröfu kæranda um að fá sendar þrjár ljósmyndir af drengnum ársfjórðungslega.

Í niðurstöðu hins kærða úrskurðar kemur fram að barn, sem sé vistað í varanlegu fóstri, eigi rétt á umgengni við kynforeldra og aðra sem séu því nákomnir samkvæmt 74. gr. bvl., nema umgengni sé bersýnilega andstæð hagsmunum og þörfum barnsins og ósamrýmanleg þeim markmiðum sem stefnt sé að með fóstrinu. Umdæmisráð taldi miðað við þau gögn sem lágu fyrir í málinu um stöðu drengsins og þá sérstaklega þau neikvæðu áhrif sem minnstu breytingar á hans daglega líf valdi honum, að það væri drengnum ekki til hagsbóta að eiga umgengni við kæranda, sem hann þekki ekki og hafi aldrei hitt, nema í það eina skipti þegar hann var eins mánaðar gamall. Að mati umdæmisráðs vó afstaða drengsins sjálfs sérstaklega þungt í málinu. Umdæmisráð tók fram að greinilegt væri að árangur hafi náðst við að bæta hæfni drengsins til að takast á við daglegt líf sitt en þó væri afar mikilvægt fyrir hagsmuni hans og almenna líðan að sem minnstar breytingar yrðu á þeirri rútínu og öryggi sem hann þekki og sé sáttur við. Niðurstaða umdæmisráðs var að það væri drengnum ekki til hagsbóta að tekin yrði upp umgengni við kæranda. Hvað varðar kröfu kæranda um myndsendingar vísaði umdæmisráð til þess að í 3. mgr. 13. gr. barnaverndarlaga væri tæmandi talið upp það sem ráðið hefði heimild til að úrskurða um. Meðal þess sem umdæmisráð úrskurði um væri umgengni í fóstri og við vistun. Í 2. málsl. 1. mgr. 74. gr. og 2. málsl. 1. mgr. 81. gr. barnaverndarlaga kæmi fram að með umgengni sé átt við samveru og önnur samskipti án þess að það sé skilgreint nánar. Þá vísaði ráðið til athugasemda með 74. gr. í frumvarpi sem varð að barnaverndarlögum þar sem fram kemur að átt sé við gagnkvæm samskipti milli foreldris eða nákomins og barns, beinan umgengnisrétt, auk annarra samskipta, svo sem í gegnum síma, bréfaskipti og þess háttar. Að mati ráðsins felst umgengni í því að barnið hitti umgengnisaðila í eigin persónu eða að notast sé við aðrar samskiptaleiðir. Umdæmisráðs telur að ákvæðið einskorðist við það að barnið og umgengnisaðili eigi gagnkvæm samskipti sín á milli og telur ráðið að myndsendingar fósturforeldra flokkist ekki undir samskipti milli drengsins og kæranda. Var kröfu kæranda um myndsendingar því vísað frá umdæmisráði.

Kærandi, sem er móðuramma drengsins, krefst þess að hinum kærða úrskurði verði hrundið og að fallist verði á að hún hafi umgengni við drenginn einu sinni í mánuði í fjórar klukkustundir í senn, auk þess sem hún fái sendar þrjár ljósmyndir af drengnum ársfjórðungslega, samtals 12 myndir á ári, og að myndirnar verði teknar 1. til 10. hvers mánaðar af drengnum sjálfum í fókus.

Samkvæmt 1. mgr. 74. gr. bvl. á barn í fóstri rétt á umgengni við kynforeldra og aðra sem eru því nákomnir. Kynforeldrar eiga með sama hætti rétt á umgengni við barn sitt samkvæmt 2. mgr. sömu lagagreinar, nema umgengni sé bersýnilega andstæð hagsmunum og þörfum barnsins og ósamrýmanleg þeim markmiðum sem stefnt er að með ráðstöfun þess í fóstur. Við mat á þessu skal meðal annars taka tillit til þess hversu lengi fóstri er ætlað að vara. Samkvæmt 3. mgr. lagagreinarinnar skal við ráðstöfun barns í fóstur taka afstöðu til umgengni barns við foreldra og aðra nákomna og skal taka mið af því hvað þjóni hagsmunum barnsins best. Samkvæmt 4. mgr. sömu lagagreinar hefur umdæmisráð barnaverndar úrskurðarvald um ágreiningsefni er varða umgengni barns við foreldra og aðra nákomna, hvort sem það varðar rétt til umgengni, umfang umgengnisréttarins eða framkvæmd umgengninnar.

Það er meginregla í barnaverndarstarfi að hagsmunir barns skuli ávallt hafðir í fyrirrúmi og beita skuli þeim ráðstöfunum sem séu barni fyrir bestu. Við úrlausn þessa máls ber því að líta til núverandi stöðu drengsins. Það er gert til þess að unnt sé að taka ákvörðun um hvort umgengni hans við kæranda þjóni best hagsmunum hans, sbr. 3. mgr. 74. gr. bvl.

Samkvæmt því, sem fram kemur í framangreindum lagaákvæðum, ber að leysa úr kröfum kæranda með tilliti til þess hvað þjónar hagsmunum drengsins best með tilliti til núverandi stöðu hans. Umgengni kæranda við drenginn þarf að vera honum til hagsbóta svo og við hæfi miðað við aðstæður og samrýmanleg þeim markmiðum sem stefnt var að með ráðstöfun hans í fóstur. Í því tilliti ber sérstaklega að horfa til þess að tryggja þarf að friður, ró, stöðugleiki og öryggi ríki í lífi drengsins í fóstri hjá fósturforeldrum þar sem markmiðið er að tryggja honum uppeldi og umönnun innan fjölskyldu sem best hentar þörfum hans, sbr. 3. mgr. 65. gr. bvl. Verði það ekki gert beri að líta svo á að þess hafi ekki verið nægilega gætt að umgengnin þjónaði hagsmunum drengsins best, sbr. 3. mgr. 74. gr. bvl.

Samkvæmt 1. mgr. 41. gr. bvl. skal barnaverndarþjónusta sjá til þess að mál sé nægjanlega upplýst áður en ákvörðun er tekin í því, sbr. 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Samkvæmt 2. mgr. 4. gr. bvl. er það meginregla að þegar ákvarðanir eru teknar í máli barns skuli tekið réttmætt tillit til skoðana þess í samræmi við aldur þess og þroska.

Í kjölfar úrskurðar úrskurðarnefndar velferðarmála í máli drengsins var drengnum skipaður talsmaður í samræmi við ákvæði 3. mgr. 46. gr. bvl. Var það m.a. gert í þeim tilgangi að kanna afstöðu hans til umgengni við kæranda. Í skýrslu talsmanns drengsins sem tók viðtal við drenginn 6. febrúar 2023 kemur fram að drengnum hugnist ekki auka umgengni við einhvern eins og er. Honum líði vel með hlutina eins og þeir séu í dag þar sem hann eigi í umgengni við foreldra sína. Hann vilji ekki auka á það sem stendur. Drengurinn útiloki ekki umgengni þegar hann verði eldri en taki fram að hann sé ekki tilbúinn á þessum tímapunkti. Að mati talsmanns var drengurinn frekar ákveðinn í afstöðu sinni hvað þetta varðar. Þá telji talsmaður að hafa verði til hliðsjónar að drengurinn sé greindur á einhverfurófi með ADHD og kvíða og hafi hann því ríkari þörf fyrir fyrirsjáanleika og áreitisstjórnun.

Þá liggur afstaða fósturforeldra fyrir og eru þau andvíg myndsendingum til kæranda og telja þær ganga gegn persónuvernd og friðhelgi drengsins. Þá eru þau andvíg umgengni við kæranda og telja að tilraunir með umgengni við aðila sem drengurinn kunni ekki deili á geti ekki verið honum til hagsbóta.

Samkvæmt gögnum málsins er það mat starfsmanna Barnaverndar BR að ekki séu forsendur fyrir því að kærandi fái umgengni við drenginn. Það séu lögvarðir hagsmunir drengsins að hann búi við stöðugleika, frið og ró í fóstrinu en hann hafi umgengni við báða foreldra sína og bróður sinn og þekki því uppruna sinn. Mikilvægt sé að viðhalda þeim stöðugleika sem hann búi við. Þá telja starfsmenn Barnaverndar B að ekki séu forsendur fyrir því að kærandi fái sendar myndir af drengnum með vísan til persónuverndar og friðhelgi einkalífs, sbr. 71. gr. stjórnarskrárinnar og Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna.

Að mati úrskurðarnefndarinnar ber fyrst og fremst að líta til hvaða hagsmuni drengurinn hefur af umgengni við kæranda. Í greinargerðum starfsmanna Barnaverndar B sem lagðar voru fyrir umdæmisráð B kemur fram það mat þeirra að það séu ekki hagsmunir drengsins að eiga umgengni við kæranda. Telja þeir mikilvægt að drengurinn fái frið og tækifæri til að viðhalda þeim stöðugleika, öryggi og ró sem hann búi við.

Úrskurðarnefndin telur það ekki vera til hagsbóta fyrir drenginn, sbr. áskilnað 1. mgr. 74. gr. barnaverndarlaga, að þvinga fram umgengni hans við kæranda, enda getur það truflað fóstrið og skapað óþarfa togstreitu í lífi hans. Úrskurðarnefndin horfir þá sérstaklega til aldurs drengsins og afstöðu hans til umgengni en hann hefur líst því yfir að hann hafi ekki þörf á umgengni við kæranda. Ber í þessu ljósi einnig að líta til þess að ekki hafa skapast tengsl á milli drengsins og kæranda.. Þá horfir nefndin jafnframt til stöðu drengsins en hann hefur verið greindur með ódæmigerða einhverfu, ADHD og kvíðaeinkenni og sé því í meiri þörf fyrir fyrirsjáanleika og áreitisstjórnun en almennt gerist.

Hvað varðar frávísun umdæmisráðs á kröfu kæranda um myndir og upplýsingar um drenginn telur úrskurðarnefnd velferðarmála að líta verði til úrskurðarvalds umdæmisráðs barnaverndar. Samkvæmt 5. tölul. 3. mgr. 13. gr. barnaverndarlaga tekur umdæmisráð ákvarðanir með úrskurði í málum er varða umgengni í fóstri og við vistun, sbr. 74. og 81. gr. laganna. Í 74. gr. laganna er kveðið á um að barn eigi rétt til umgengni við foreldra og aðra sem því eru nákomnir. Þá er tekið fram að með umgengni sé átt við samveru og önnur samskipti. Í frumvarpi því sem varð að barnaverndarlögum kemur fram í athugasemdum við 74. gr. að með ákvæðinu sé átt við beinan umgengnisrétt, auk annarra samskipta, svo sem í gegnum síma, bréfaskipti og þess háttar. Að framangreindu virtu telur úrskurðarnefnd velferðarmála að myndsendingar þar sem ekki er um að ræða bein samskipti barns við þann aðila sem það á umgengni við falli utan úrskurðarvalds umdæmisráðs.

Með vísan til alls þess, sem að framan greinir, ber því að staðfesta hinn kærða úrskurð.


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Úrskurður umdæmisráðs B frá 17. maí 2023 varðandi umgengni C, við A, er staðfestur.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

 

Kári Gunndórsson

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum